Landhelgisgæslan nýtur mest trausts meðal almennings í könnun sem MMR gerði á trausti almennings til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála. Útlendingastofnun nýtur minnst trausts.
Alls sögðust 87,3% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar. Traust til Landhelgisgæslunnar hefur aukist nokkur frá því í febrúar 2011 þegar 80,8% sögðust bera mikið traust til hennar.
Traust á dómskerfinu í heild hefur aukist nokkuð og sögðust 44,5% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til þess, borið saman við 33,6% í febrúar 2011.
Í könnuninni nú mældist Ríkislögreglustjóri njóta trausts 64,9% þeirra sem tóku afstöðu og 50,7% sögðust bera mikið traust til Ríkissaksóknara.
Traust til Hæstaréttar hækkar nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 38,8% sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 53,2% nú. Jafnframt hefur hlutfall þeirra sem bera lítið traust til Hæstaréttar minnkað talsvert á milli mælinga, úr 34,7% í febrúar 2011 í 19,5% nú.
Traust til Útlendingastofnunar eykst nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 22,2% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 27,4% nú.
Traust til embættis sérstaks saksóknara hefur dregist nokkuð saman frá því í febrúar 2011 þegar 59,8% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar borið saman við 51,8% nú.
Þá mælist traust til Fangelsismálastofnunar nú vera 48,7%. Það eykst frá því í febrúar 2011 þegar það mældist 40,4%.