Starfsmenn kirkjugarða veita aðstoð

mbl.is/Kristinn

Starfsmenn Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma munu í dag og á morgun aðfangadag veita fólki aðstoð í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði, Kópavogskirkjugarði og Hólavallagarði á milli kl. 9-15.

Þeir aðstoða fólk við að finna leiði og afhenda ratkort ef með þarf, að því er segir í tilkynningu.

Tekið er fram að Fossvogskirkjugarður sé lokaður fyrir bílaumferð milli kl. 9 og 15 á aðfangadag en hreyfihömluðum sé heimilt að aka um garðinn.

Á morgun aðfangadag verður Fossvogskirkja opin á milli 10 til 12  fyrir þá sem vilja staldra við í dagsins önn. Þar mun verða leikin jólatónlist af geisladiskum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert