„Þetta eru glæsileg úrslit“

Össur Skarphéðinsson utanríkisáðherra í morgun.
Össur Skarphéðinsson utanríkisáðherra í morgun. mbl.is/Styrmir Kári

„Þetta eru glæsileg úrslit sem fengust rétt áðan og ég er ekki búinn að jafna mig,“ sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fyrir stundu. Hann sagði niðurstöðuna ekki hafa komið sér alfarið á óvart og eftir því sem málinu hafi undið fram hafi hann fengið á því betri trú.

Össur sagði það sem koma verulega á óvart að Ísland þurfi ekki að greiða málskostnað að neinu leyti heldur er kostnaðurinn lagður á ESA. „Það undirstrikar hversu algjör sigur okkar er. Málstaður okkar var góður og batnaði eftir því sem leið á.“

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson Rax / Ragnar Axelsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert