Flugeldasýningin á Menningarnótt var glæsileg að vanda. Sýningin kom í kjölfar tónleikanna á Arnarhóli, þar sem tónleikagestir kölluðu „Meira, meira!“ eftir að Sálin kláraði sinn þátt í tónleikunum.
Menningarnótt hefur enn sem komið er farið vel fram, en lögregla hefur þurft að hafa afskipti af nokkrum ungmennum við drykkju.