Mikill munur er á atvinnuþátttöku ungs fólks á Norðurlöndunum samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðu velferðarráðuneytisins þar sem vísað er í nýja skýrslu um vinnuaðstæður ungs fólks sem tekin var saman að frumkvæði Norrænu ráðherranefndarinnar og kynnt á ráðstefnu í Stokkhólmi í dag. Þar kemur fram að að Íslandi séu 52% ungmenna á aldrinum 15-19 ára við störf, 44% í Danmörku, 35% í Noregi, 24% í Finnlandi og einungis 16% í Svíþjóð.
„Mörg ungmenni eru í láglaunastörfum sem krefjast engrar skilgreindrar kunnáttu eða þekkingar og vinnutíminn er gjarna óreglulegur segja skýrsluhöfundar. Oft er þetta ungt fólk sem vinnur með námi en einnig ungmenni sem hafa hætt skólagöngu snemma. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að ungt fólk er líklegra til að lenda í vinnuslysum en fullorðnir, þótt minni líkur séu á dauðaslysum við störf hjá ungu fólki. Skýrsluhöfundar benda meðal annars á að sífellt fjölgi í hópi ungs fólks á aldrinum 15 – 19 ára sem vinnur hlutastörf og það eigi einkum við um stúlkur sem í vaxandi mæli sinni afgreiðslustörfum sem eldri konur unnu áður.“
Fjölgun hlutastarfa virðast hins vegar hafa neikvæð áhrif á vinnuumhverfi ungs fólks en ástæður þess séu að mati skýrsluhöfunda þær „að fólk í hlutastörfum fái minni handleiðslu við upphaf starfs og minni fræðslu varðandi öryggismál, verklag og fleiri þætti sem snúa að öryggi og heilsu. Einnig er bent á að vinnutími fólks í hlutastörfum sé gjarna utan dagvinnutíma og því fáir ef nokkrir starfsmenn með reynslu á staðnum til að veita unga fólkinu stuðning og leiðsögn.“