Sprengjuhótun í flugvél WOW air um hádegi í dag er upplýst. Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að það var 13 ára drengur sem hringdi á skrifstofur WOW air með hótunina og hefur hann gengist við því.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
„Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum enda viðbúnaður mikill af hálfu viðbragðsaðila auk þess sem atvikið hafði áhrif á ferðir farþeganna í vélinni,“ segir í tilkynningunni.
Sagði sprengju um borð í vél WOW