Aldís er nýr aðstoðaryfirlögregluþjónn

Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn ásamt Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra.
Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn ásamt Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra.

Aldís Hilmarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Aldís verður yfirmaður R-2 deildar, sem rannsakar fíkniefnamál og skipulagða glæpastarfsemi.

Hún hefur starfað hjá lögreglunni í meira en áratug, fyrst sem lögreglumaður hjá lögreglunni í Reykjavík og Keflavík á árinum 2002-2003 og síðan sem lögreglufulltrúi í efnahagsbrotadeild hjá embætti ríkislögreglustjóra frá síðla árs 2003 til snemma árs 2008.

Þá réðst Aldís til starfa hjá Deloitte og vann þar megnið af árinu 2008. Hún kom aftur til starfa hjá lögreglunni í árslok 2008 og var lögreglufulltrúi í fjármunabrotadeild LRH til vors 2011. Þá var hún ráðin til embættis sérstaks saksóknara þar sem hún gegndi stöðu lögreglufulltrúa þar til nú.

Aldís hefur lokið BS-námi í viðskiptafræði frá HR og stjórnunarnámskeiði frá HÍ. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að Aldís sé sett í embætti til eins árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert