Hjörtur afi leitar að heimili

Hjörtur elskar að láta kela við sig.
Hjörtur elskar að láta kela við sig. Skjáskot af Facebook

Hjörtur er mikill ljúflingur. Hann er duglegur að þrífa kettlingana og að siða þá til og er þess vegna oft kallaður afi. Hann er hæglátur og tekur lífinu með ró. Hann óskar eftir eiganda sem vill liggja með honum í leti, knúsa hann og elska.

Þannig hljómar færsla á Facebook-síðu Kattholts þar sem leitað er eiganda fyrir hinn ljúfa Hjört.  Hjörtur er aðeins einn margra katta sem dvelja í athvarfinu og þurfa að fá góð heimili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert