Pálmi Gestsson, leikari, les passíusálma Hallgríms Péturssonar í heild sinni í Hólskirkju í Bolungarvík á föstudaginn langa.
Þetta er í þriðja sinn sem Pálmi les alla sálmana í Hólskirkju á föstudaginn langa.
Lesturinn hefst kl. 13:00 og eru allir velkomnir í kirkjuna.
Upplestrinum verður streymt á Facebook-síðu kirkjunnar.
Á milli lestra verða flutt stutt tónlistaratriði af Guðrúnu B. Magnúsdóttur, organista, og Gunnari Hirti Hagbarðssyni, nemanda í Tónlistarskóla Bolungarvíkur.