Gassprenging í World Class

World Class Laugar
World Class Laugar Styrmir Kári

Lítil gassprenging varð í líkamsræktarstöðinni World Class í Laugum í dag. Sprengingin varð þegar starfsmaður ætlaði að kveikja upp í arni á spa-svæði líkamsræktarstöðvarinnar en arinninn gengur fyrir gasi. 

Að sögn slökkviliðs var einn starfsmaður sendur á spítala með minniháttar brunasár. Störf slökkviliðs gengu auðveldlega fyrir sig og var öllum störfum þeirra lokið stuttu fyrir hádegi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert