„Ekki“-fólkið í skránni

Árni Páll Árnason er nemi, ekki stjórnmálamaður.
Árni Páll Árnason er nemi, ekki stjórnmálamaður. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Árni Páll Árnason nemi er einn átta Íslendinga sem eru skráði í símaskrá með „ekki“ fyrir aftan nafn sitt.

Árni Páll Árnason „ekki stjórnmálamaðurinn“ eins og hann heitir á ja.is segist hafa sett þennan titil við nafn sitt í símaskránni í kringum kosningarnar síðasta vor.

„Ég vaknaði einn morguninn og sá að ég ætti að vera mættur í einhver fimm útvarpsviðtöl. Þá ákvað ég að taka upp símann, hringja í já.is og setja „ekki stjórnmálamaður“ fyrir aftan nafnið mitt,“ segir Árni Páll, sem segist nú vera alveg laus við áreitið frá fjölmiðlafólki og kjósendum sem vildu ná tali af stjórnmálamanninum.

Alls eru átta einstaklingar skráðir sem „ekki-fólk“ í símaskránni. Þeirra á meðal eru Ellen Kristjánsdóttir ekki söngkonan, Vilhjálmur Bjarnason ekki fjárfestir, Hjalti Rögnvaldsson ekki leikari og flugumferðarstjórinn Jón Karl Einarsson, sem er ekki kórstjórinn sem ber sama nafn.

Ekki fylgir sögunni hvort Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, hafi …
Ekki fylgir sögunni hvort Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, hafi mætt í útvarpsviðtölin sem nafni hans fékk áminningu um. mbl.is/Ómar Óskarsson
Ellen Kristjánsdóttir tónlistarmaður á alnöfnu.
Ellen Kristjánsdóttir tónlistarmaður á alnöfnu. mbl.is/Ómar Óskarsson
Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir missir stundum af símtölum sem fara til …
Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir missir stundum af símtölum sem fara til Vilhjálms Bjarnasonar ekki fjárfestis. mbl.is/Rósa Braga
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert