Ný jarðstrengstenging í undirbúningi

Ljósmynd/Landsnet

Selfosslína 3, ný jarðstrengstenging milli Selfoss og Þorlákshafnar, er nú í undirbúningi hjá Landsneti. Línan mun auka afhendingaröryggi raforku í Hveragerði, Þorlákshöfn og á Selfossi, að því er segir í frétt á vef Sunnlensku.

Þar segir að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum en breyta þurfi aðalskipulagi sveitarfélaganna Árborgar og Ölfuss. Jarðstrengurinn verður 66 kílóvolt (kV) og mun liggja frá tengivirki við Selfoss að tengivirki við Þorlákshöfn. Hann verður um 28 kílómetra langur og er fyrirhugað að leggja hann að mestu meðfram vegum sem fyrir eru á svæðinu.

Áætlað er að jarðvinna og strenglagningin verði boðin út fyrri hluta árs 2015 og að lagningu hans ljúki fyrir árslok, segir í fréttinni. Strengleiðin liggur um sveitarfélögin Árborg og Ölfus og er unnið að skipulagsmálum í samvinnu við þau, en bæði bæði sveitarfélög hafa auglýst breytingar á aðalskipulagi vegna strenglagningarinnar.

Athugasemdafrestur hjá Sveitarfélaginu Ölfus er til 6. maí næstkomandi en 12. maí hjá Sveitarfélaginu Árborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert