Settir verði upp fleiri myndavélakassar

mbl.is/Jakob Fannar

Ökuhraði á Sandgerðisvegi hefur lækkað eftir að settar voru upp hraðamyndavélar á veginum árið 2008. Stungið er upp á því í nýjasta tölublaði Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar að settir verði upp fleiri myndavélakassar við veginn en að skipst verði á því að hafa myndavél í þeim. Þannig megi lengja áhrifasvið myndavélanna.

Í tengslum við umferðaröryggisáætlun stjórnvalda hefur Vegagerðin sett upp nokkrar hraðamyndavélar á þjóðvegum. Tilgangur verkefnisins er að kanna hver áhrif myndavélanna eru á umferðarhraða, en talið er að samband sé á milli slysatíðni og umferðarhraða þannig að slysastíðni hækki ef hraði eykst auk þess sem alvarleiki slysa verði meiri.

Í tölublaðinu segir að mælingar hafi verið gerðar árið 2010 á Sandgerðisvegi, en þar voru hraðamyndavélar settar upp árið 2008.

Niðurstöðurnar voru meðal annars bornar saman við mælingar sem gerðar voru áður en myndavélarnar voru settar upp. Þær sýna að hraðinn hefur lækkað eftir að myndavélarnar voru settar upp.

„Hins vegar virðast áhrif hraðamyndavélanna vera nokkuð staðbundin. Meðalhraði er hár áður en komið er að myndavél, lækkar við myndavélina og helst nokkuð stöðugur í kílómetra frá myndavél en eykst svo aftur,“ segir í tölublaðinu. Einnig kom fram að mesti hraði sem mældur var hefði lækkað mjög við myndavélarnar sjálfar, en hækkað um leið og frá þeim var farið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert