Margir í bænum en allir stilltir

mbl.is/Hjörtur

Margt fólk var að skemmta sér á Ísafirði í gærkvöldi og nótt og fór skemmtanahald að sögn lögreglu vel fram. Einn var þó stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar var tekinn með smáræði af fíkniefnum í fórum sínum.

Eins og lögreglan á Ísafirði orðar það: „Það var margt fólk í bænum en allir stilltir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert