Gáfu gjöf í minningu Sólveigar

Eiginmaður Sólveigar og börn afhentu gjöfina.
Eiginmaður Sólveigar og börn afhentu gjöfina. Ljósmynd/Landspítalinn

Blóðlækningadeild 11G á Landspítala hefur fengið að gjöf fjórar nýjar dýnur og tvær yfirdýnur. 

Gjöfin er til minningar um Sólveigu Indriðadóttur sem lést á deildinni í ársbyrjun.  

Aðstandendur hennar vildu sýna þakklætisvott til deildarinnar með gjöfinni. 

Eiginmaður Sólveigar og börn afhentu gjöfina og var þökkuð hugulsemin, segir í tilkynningu frá Landspítalanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert