Geymdi amfetamín í frystinum

AFP

Rúmlega þrítugur karlmaður var staðinn að vörslu amfetamíns í hýbýlum sínum, þegar lögreglan á Suðurnesjum fór í húsleit þar um nýverið. Efnið geymdi maðurinn í frystihólfi í ísskáp á heimili sínu.

Meðleigjandi hans, sem einnig var á vettvangi, framvísaði kannabisefnum og kannabisfræjum.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert