Sumarhús alelda við Hafravatn

Tilkynning barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu um klukkan sjö í kvöld um alelda sumarhús við Hafravatn. Þrír dælubílar voru sendir á staðinn og eru þeir þar núna.

Unnið er að því að slökkva eldinn og tryggja að eldurinn berist ekki í gróður. Ekki er vitað hvað olli eldsvoðanum en sumarhúsið er gjörónýtt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert