Vélin var á síðustu dropunum

Beechcraft Bonanza G36, sambærileg vélinni sem lenti á síðustu dropunum.
Beechcraft Bonanza G36, sambærileg vélinni sem lenti á síðustu dropunum.

Lítil eins hreyfils flugvél af gerðinni Beechcraft Bonanza G36, sem var í ferjuflugi frá Grænlandi til meginlands Evrópu með millilendingu á Íslandi haustið 2010, var hætt komin.

Áttu flugmennirnir aðeins eftir 3,8 l af eldsneyti á hvorum tanki eftir lendingu í Keflavík, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar flugslysa um atvikið.

Vélin fór frá Syðri-Straumsfirði á Grænlandi og ætluðu flugmennirnir, sem voru tveir í vélinni, að millilenda í Kulusuk á austurströnd Grænlands til þess að taka eldsneyti en hættu við og settu stefnuna á Ísland, fyrst til Reykjavíkur en síðan á Keflavík. Þeir lentu í miklum mótvindi og ísingu og þegar tveir tímar voru í lendingu óttuðust flugmennirnir að eldsneytið dygði ekki alla leið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert