ESA samþykkir byggðakort fyrir Ísland

Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) eru í Brussel í Belgíu.
Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) eru í Brussel í Belgíu.

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, samþykkti í dag tillögu Íslands um svæði þar sem veita má byggðaaðstoð, svokallað byggðakort.

Byggðakortið skilgreinir þau svæði á Íslandi þar sem leiðbeiningarreglur ESA um byggðaaðstoð gilda. Á þeim svæðum einum getur ESA heimilað að Ísland veiti byggðaaðastoð, að því er segir í frétt á vef ESA.

Kortið sem ESA samþykkti í dag skiptir landinu upp í tvö svæði; höfuðborgarsvæðið annars vegar og landsbyggðina hins vegar. Á svæðinu sem skilgreint er sem landsbyggð búa 35,9% þjóðarinnar.

Samþykki ESA á byggðakortinu felur ekki í sér samþykki á ríkisaðstoð. Slíka aðstoð má aðeins veita með fyrirframsamþykki ESA, að undangenginni formlegri tilkynningu og málsmeðferð, segir í tilkynningunni.

Íslensk yfirvöld geta nú tilkynnt ESA fyrirtætlanir sínar um að veita byggðaaðstoð á landsbyggðinni á tímabilinu 1. júlí 2014 til 31. desember 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert