Ragnheiður Björk bæjarlistarmaður Akureyrar

Frá Vorkomu Akureyrarstofu. Aftari röð frá vinstri: Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri …
Frá Vorkomu Akureyrarstofu. Aftari röð frá vinstri: Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri Slippsins, Ágúst Guðmundsson framkvæmdastjóri Neptune, Guðni Helgason framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar, Ólafur Búi Gunnlaugsson forstöðumaður fasteigna og rekstrar við Háskólann á Akureyri og Sigurður Halldórsson arkitekt frá Glámu-Kím. Fremri röð: Sunna Borg leikkona, Ragnheiður Björk Þórsdóttir bæjarlistamaður og Guðmundur Ármann Sigurjónsson myndlistarmaður. Ljósmynd/Akureyrarstofa

Myndlistamaðurinn Ragnheiður Björk Þórsdóttir hlýtur 8 mánaða starfslaun listamanns á Akureyri 2014-2015. Þetta var tilkynnt ás.k. Vorkomu Akureyrarstofu, sem haldin var í einmuna veðurblíðu á Akureyri í dag.

Ragnheiður Björk er sög fremst í sinni röð meðal textíllistamanna hér á landi. „Með list sinni leggur hún rækt við íslenskan menningararf bæði með rannsóknavinnu sinni og í sköpun nýrra vefmyndverka. Framlag hennar til myndlistar er metnaðarfullt og mikilsvert,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarstofu.

Á samkomunni í dag voru einnig veittar heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs, viðurkenning Húsverndarsjóðs, viðurkenning fyrir byggingalist og athafna- og nýsköpunarverðlaun Akureyrar.

Heiðursviðurkenningar úr Menningarsjóði fyrir mikilvægt framlag til menningarmála á Akureyri hlutu myndlistamaðurinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson og leikkonan Sunna Borg.

Arkitektastofan Gláma-Kím hlaut viðurkenningu fyrir byggingalist fyrir heildarútlit Háskólans á Akureyri og einkar áhugaverða heildarmynd háskólasvæðisins. Það var svo hið reisulega hús við Þórunnarstræti 99 sem hlaut viðurkenningu húsverndarsjóðs Akureyrar. Húsið var hannað af Guðjóni Samúelssyni árið 1943 en þá var hann húsameistari ríkisins. Til gamans má nefna að hann hannaði einnig Akureyrarkirkju og Barnaskóla Akureyrar (nú Rósenborg).

Vel þykir hafa tekist til við að aðlaga húsið nýju hlutverki án þess að ganga of nærri upprunalegu útliti þess og raska fagurfræðilegum hlutföllum í því en samráð var haft við Minjastofnun/húsafriðunarnefnd um hönnun og frágang hússins.

Slippurinn á Akureyri, sem er stærsta skipasmíða- og málmvinnslufyrirtækið á Íslandi, veitti viðtöku Athafnaverðlaunum Akureyrar fyrir eftirtektarvert framtak í atvinnulífinu. Nýsköpunarverðlaunin komu í hlut Neptune ehf. en fyrirtækið gerir út tvö rannsóknarskip sem sérhæfð eru til að þjónusta orkugeirann. Það þjónar einnig fyrirtækjum og verkefnum í fjarskiptaiðnaði og kemur að meðhöndlun sæstrengja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert