Verkfalli við HA aflýst

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri.

Félag háskólakennara á Akureyri og Háskólinn á Akureyri hafa komist að samkomulagi um gerð stofnanasamnings. Boðuðu verkfalli háskólakennara á Akureyri hefur því verð aflýst. Þetta kemur fram á norðlenska fréttavefnum Vikudagur.

Samkvæmt frétt Vikudags er gert ráð fyrir að skrifað verði undir aðalkjarasamning við fyrsta tækifæri og fyrirhuguðu verkfalli aflýst í kjölfar þess.

Prófatíð verður því með eðlilegum hætti, en verkfall hafði verið boðað frá 28. apríl til 12. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert