Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnuflugmanna skrifuðu í nótt undir samning sem gildir til 30. september 2014. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair er samningurinn í meginatriðum í takt við þá samninga sem gerðir hafa verið á vinnumarkaði á árinu.
Samningurinn fer nú í kynningu hjá flugmönnum Icelandair í FÍA og rafræna kosningu sem tekur sjö daga.
Á þessu stigi er ekki hægt að áætla fjárhagstjón Icelandair Group vegna aðgerða FÍA í vinnudeilunni, samkvæmt tilkynningu frá flugfélaginu.
Á samningstímanum munu Icelandair Group og FÍA vinna sameiginlega að langtímasamningi.