Einn dómara vildi sakfella þrjá

Verjendur sakborninga. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, er lengst til …
Verjendur sakborninga. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, er lengst til hægri. mbl.is/Golli

Einn dómara í Aurum-málinu svonefnda skilaði séráliti og vildi sakfellda Lárus Welding, fv. forstjóra Glitnis, og Magnús Arnar Arngrímsson, fv. framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs, fyrir umboðssvik en einnig Jón Ásgeir Jóhannesson fyrir hlutdeild í umboðssvikunum. Þeir voru hins vegar allir sýknaðir, enda meirihluti fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjavíkur á þeirri skoðun að um hefðbundin viðskipti hefði verið að ræða.

Í málinu voru ákærðir þeir Lárus, Jón Ásgeir, sem einn aðaleigandi bankans, Magnús Arnar og Bjarni Jóhannesson, viðskiptastjóri Glitnis, fyrir umboðssvik eða hlutdeilt í umboðssvikum vegna sex milljarða króna lánveitingar Glitnis banka til félagsins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjármagna að fullu kaup FS38 ehf. á 25,7% hlut Fons hf. í Aurum Holdings Limited.

Í séráliti Arngríms Ísberg héraðsdómara kemur fram að hann vildi sakfella þrjá af fjórum sakborningum fyrir umboðssvik og hlutdeild í umboðssvikum. Bjarna vildi hann hins vegar einnig sýkna. Meirihluti dómsins taldi hins vegar að sýkna bæri alla sakborninga af kröfum ákæruvaldsins og varð það úr. 

Dómurinn hefur ekki verið birtur en samkvæmt því sem kom fram í máli verjenda eftir dómsuppkvaðninguna var fallist á rökstuðning þeirra við aðalmeðferð málsins. Glitni hafi verið betur settur eftir viðskiptin og verðmat hafi ekki verið of lágt, eins og sérstakur saksóknari hélt fram.

Kom ekki á óvart

Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, sagði niðurstöðu héraðsdóms ekki koma sér á óvart. Sýnt hafi verið fram á það við aðalmeðferðina með samtímagögnum að verðmatið á Aurum Holdings var vel réttlætanlegt og jafnvel hóflegt. Þannig hafi fullyrðingar sérstaks saksóknara um annað verið hraktar.

Má í þessu sambandi nefna gagn sem kom fram við upphaf aðalmeðferðar málsins og verjendur sögðu lykilgagn í málinu. Það var verðmat Kaupþings á Aur­um frá því í apríl 2008. Niðurstaða verðmatsins var sú að verðmæti Aur­um hafi verið 121 millj­ón punda. Við lán­veit­ing­una í júlí 2008 hafi Glitn­ir metið verðmætið 100 millj­ón­ir punda. 

Gest­ur sagði þá að það væri um­hugs­un­ar­efni hvers vegna ákæru­valdið hafi ekki lagt fram þau sam­tíma­gögn sem til eru um verðmæti Aur­um enda hljóti þau að skipta mestu máli þegar leitað er svara við þeirri grund­vall­ar­spurn­ingu hvort fjór­menn­ing­arn­ir hafi af ásetn­ingi valdið bank­an­um veru­legri fjár­tjóns­hættu.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sem flutti málið af hálfu embættis síns var ekki viðstaddur uppkvaðninguna en annar saksóknari við embættið var í dómssal þegar dómur var kveðinn upp. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um áfrýjun málsins en gera má því skóna að sú ákvörðun verði auðveld, ekki síst með tilliti til þess að einn dómara málsins vildi sakfella þrjá af fjórum sakborningum.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í héraðsdómi.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í héraðsdómi. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka