Kröfur flugvirkja sem starfa fyrir Icelandair eru óraunhæfar og langt umfram það sem samið hefur verið um á almennum markaði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. Þar segir að kröfurnar séu margfalt hærri en samið hafi verið um við aðrar flugstéttir og samsvari rúmlega 30% launahækkun.
„Samtök atvinnulífsins og Icelandair hafa lagt allt kapp á að leita lausnar sem samrýmist efnahagslegum stöðugleika til lengri tíma, en því miður hefur það ekki gengið. Í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin er óhjákvæmilegt að varpa ljósi á launakjör og launaþróun flugvirkja. Frá árinu 2007 hafa laun flugvirkja hækkað um 62,6% en um 38,5% hjá félagsmönnum ASÍ á almennum markaði,“ segir í tilkynningunni.
Flugvirkjar hjá Icelandair hafa boðað til verkfalls þann 16. júní náist ekki samningar fyrir þann tíma.