Varað var við eftirliti lögreglu

Ferðamenn á Geysissvæðinu.
Ferðamenn á Geysissvæðinu. mbl.is/Rax

184 ökutæki tengd ferðaþjónustu voru stöðvuð við Geysi í Haukadal í gær, í sameiginlegum aðgerðum sex lögregluembætta, Ríkisskattstjóra, Samgöngustofu og Frumherja. Verkefnið er liður í eftirliti með leyfismálum og svartri starfsemi í ferðaþjónustu.

Á vettvangi fengu lögreglumenn upplýsingar um að þegar upp úr kl. 10 um morguninn hafi einhver tekið sig til og sent sms á tiltekinn hóp í ferðaþjónustunni þar sem varað var við eftirliti lögreglu, ríkisskattsttjóra og samgöngustofu á þessum stað.

Tilefni til áframhaldandi eftirlits

Eftirlitið stóð frá kl. 10-15 í gær. Af þeim 184 ökutækjum sem voru stöðvuð höfðu starfsmenn ríkisskattstjóra afskipti af 69 og munu vinna úr þeim upplýsingum á næstunni og bera saman við gögn sem liggja fyrir hjá skattayfirvöldum um rekstur og skattaskil.

Starfsmenn Samgöngustofu athuguðu leyfamál hjá ökumönnum á 19 rútum, 6 jeppum með s.k. jeppaleyfi, 7 bílaleigubílum og 3 leigubílum.

Lögreglan vísaði 23 bílum til skoðunar í færanlegri skoðunarstöð Frumherja, sem var komið fyrir á bílaplaninu við Geysi. Þar af voru 7 hópbifreiðar, tvær þeirra breyttar, 3 breyttir bílar í einkaeigu og 15 fólksbílar. 13 fengu athugasemdir vegna ástands og var vísað til endurskoðunar. 

Samstarfsnefnd lögregluliða á Suðvesturlandi, þ.e. Hvolsvelli, Selfossi, Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Akranesi og Borgarnesi hófu samstarfsverkefnið í fyrravor, en það snýr m.a. að eftirliti með ástandi og leyfamálum bílaleiga. Að þessu sinni var það útvíkkað til þess að ná til fleiri aðila í ferðaþjónustu.

Fram kemur á vef lögreglu að þeir sem að eftirlitinu komu hafi verið sammála um að þetta form hefði gefist vel og tilefni væri til að hafa framhald á, ekki síst þegar fjöldi skemmtiferðaskipa er í höfn með tilheyrandi gestagangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert