Fjöldi einstaklinga hefur leitað til Umboðsmanns skuldara í ár og óskað fjárhagsaðstoðar vegna skiptikostnaðar sem fellur til við gjaldþrot. Opnað var fyrir umsóknirnar þegar ný lög tóku gildi 1. febrúar sl.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Svanborg Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi Umboðsmanns skuldara, tæplega þriðjung umsóknanna vera frá Reykjanesi.
Þar hafa 65 sótt um að fá skiptakostnaðinn greiddan, borið saman við 88 umsækjendur í Reykjavík. Hún segir embættið búast við einhverri fjölgun slíkra umsókna á síðari helmingi ársins en að þeim muni að líkindum fækka á næsta ári.