Um klukkan hálftvö í nótt var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um karlmann í annarlegu ástandi í afgreiðslu hótels í miðborginni. Þegar höfð voru afskipti af honum brást hann illa við og hafði m.a. í hótunum við lögreglumenn.
Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa í nótt. Hann verður svo yfirheyrður þegar áfengisvíman rennur af honum, að sögn lögreglu.
Fyrr um kvöldið, eða um 21-leytið, var lögreglu tilkynnt um karlmann sem svaf ölvunarsvefni í miðborginni. Lögregla fór á staðinn og vakti manninn, en þar sem hann átti ekki í önnur hús að venda var hann vistaður í fangaklefa þangað til rennur af honum.