Kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur staðfest að lík ferðamannsins sem fannst við Háöldu suðvestur af Landmannalaugum í síðustu viku sé af Bandaríkjamanninum Nathan Samuel Foley-Mendelssohn.
Ekkert hafði spurst til mannsins, sem fæddist árið 1979, eftir að hann hvarf 10. september í fyrra eftir að hafa lagt af stað í gönguferð frá skálanum í Landmannalaugum. Víðtæk leit var gerð að Foley-Mendelssohn en um tíma leituðu hans hundruð björgunarsveitarmanna. Vonskuveður var þegar hann lagði af stað í gönguferðina.
Telja lík Bandaríkjamannsins fundið