Sindri með yfirlýsingu vegna líkamsárásar

mbl.is/AFP

Knattspyrnudeild Sindra á Hornafirði hefur sent frá sér tilkynningu vegna atviks í leiks Sindra og Snæfells í 2. flokki karla síaðsta sunnudag, þar sem leikmaður Sindra réðst á leikmann Snæfells með þeim afleiðingum að leikmaður Snæfellsness var fluttur illa slasaður á sjúkrahús. Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér að neðan.

YFIRLÝSING FRÁ STJÓRN KNATTSPYRNUDEILDAR SINDRA


Stjórn knattspyrnudeildar Sindra harmar atvik sem átti sér stað á Hellissandsvelli í leik
Snæfells og Sindra í 2. flokki karla, sunnudaginn 20. júlí sl., þar sem tveimur leikmönnum
lenti saman undir lok leiksins. Leikmaður Sindra gerðist sekur um líkamsárás sem leiddi til
þess að leikmaður Snæfells var fluttur á sjúkrahús.

Stjórn knattspyrnudeildar Sindra harmar mjög þetta atvik og vill fyrir hönd félagsins og leikmannsins biðja leikmann Snæfells og fjölskyldu hans afsökunar. Stjórn knattspyrnudeildar Sindra lítur atvik sem þetta mjög alvarlegum augum.

Stjórnin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að hjálpa leikmanni Sindra í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að sambærilegt atvik endurtaki sig. Í þeirri viðleitni mun stjórnin leita aðstoðar barnaverndaryfirvalda á Höfn og fagfólks.

Skýrsla dómara leiksins er nú þegar komin inn á borð aganefndar KSÍ. Leikmaður Sindra mun una niðurstöðu aganefndar KSÍ þegar hún liggur fyrir. Það sama mun knattspyrnudeild Sindra gera.

Það er von stjórnar knattspyrnudeildar Sindra að atvik þetta verði ekki til þess að skaða gott orðspor knattspyrnunnar á Íslandi. Stjórnin mun nú sem endranær hvetja leikmenn, þjálfara og stuðningsmenn til að sýna háttvísi og heiðarleika. Þannig bætum við íslenska knattspyrnu.

Með virðingu og vinsemd.
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert