Innkalla kremaða kjúklingasúpu

Heildverslunin John Lindsay hf.  hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla kjúklingasúpu þar sem varan inniheldur sellerí sem ekki er tilgreint í innihaldslýsingu. Uppskriftinni að súpunni var nýlega breytt þannig að selleríi var bætt við hana.  Láðist að breyta umbúðunum til samræmis.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Toro.

Vöruheiti:  Kremet Kyllingsuppe.

Best fyrir:  27.03.2016 til 06.06.2016.

Framleiðandi:  Orkla Foods Norge.

Innflytjandi:  John Lindsay hf., Klettagörðum 23, 104 Reykjavík.

Dreifing:  Verslanir um land allt.

Sellerí og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. 

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir selleríi og afurðum úr því.  Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir selleríi eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga henni eða skila til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert