Stærstu sveitarfélög landsins hafa verið krafin svara í bréfi frá velferðarráðuneytinu um stöðu biðlista eftir félagslegu húsnæði og hvort sveitarfélögin fullnægi lögboðnu hlutverki sínu.
Í bréfinu óskar ráðuneytið eftir upplýsingum frá sveitarfélögunum fyrir 8. ágúst nk. og vill fá skýr svör um hversu langir biðlistar eftir félagslegu húsnæði séu hjá sveitarfélögunum og hvort þau fullnægi lögboðnu hlutverki sínu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Í því samhengi vill ráðuneytið fá að vita hver sé heildarfjöldi umsókna um félagslegt leiguhúsnæði sem barst, annars vegar á síðasta ári og hins vegar fyrstu sex mánuði þessa árs.