Réðst á erlendan ferðamann

mbl.is/Hjörtur

Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn skömmu eftir miðnætti í nótt við Cabin-hótelið í Borgartúni eftir að hafa ráðist á erlendan ferðamenn. Árásarmaðurinn veitti lögreglunni mikla mótspyrnu við handtöku og var hann að lokum vistaður í fangageymslu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var hann jafnframta með fíkniefni í fórum sínum. Ferðamaðurinn var fluttur á slysadeild til að fá áverkavottorð og hyggst hann leggja fram kæru síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert