Bakkað tvisvar á sama bílinn

Kirkjubæjarklaustur - Bakkað var á sömu bifreið tvisvar með korters …
Kirkjubæjarklaustur - Bakkað var á sömu bifreið tvisvar með korters millibili á Kirkjubæjarklaustri í gær. www.mats.is

Tvisvar var bakkað á sömu bifreið sem var lagt fyrir utan verslun á Kirkjubæjarklaustri í gær. Lögreglunni á Hvolsvelli bárust tvær ólíkar tilkynningar með korters millibili um að bakkað hefði verið á bifreiðina.

Ekki tókst að hafa upp á þeim þeim sem bakkaði á bílinn í fyrra skiptið, en lögreglu tókst að stöðva seinni ökumanninn þar sem hann var á ferð skammt frá. Mál hans er í rannsókn, að sögn lögreglu.

Um var að ræða Dacia Duster jeppling sem var lagt á malarplani fyrir utan verslunina. Tvær minniháttar dældir sjást á bílnum eftir atvikin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert