„Griffilshöllin“ rís í Laugardal

Móttaka bóka hófst á skiptibókamarkaði Griffils í dag, rúmum þremur vikum eftir stórbrunann í Skeifunni. Hann er nú til húsa í Laugardalshöllinni og verður þar út ágúst. Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Pennans, segir bjartsýni ríkja meðal starfsfólks sem nú keppist við að koma hinum tímabundna markaði í gagnið á meðan leitað er að framtíðarhúsnæði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert