Slasaðist á vaði yfir á

Landsbjörg

Björgunarsveitir frá Skaftártungu og Kirkjubæjarklaustri eru nú að koma að Hólaskjóli í Skaftártungu þar sem maður er slasaður á fæti. Var hann að vaða ána Syðri-Ófæru hjá tjaldsvæðinu í Hólaskjóli þegar fótur hans festist á milli tveggja steina. Þar sat maðurinn fastur í miðri á, í vatni upp að mitti. 

Náðu landverðir manninum upp úr ánni og bíða með honum eftir aðstoð. Talið er að hann sé fótbrotinn. Koma þarf manninum yfir ána og undir læknishendur en straumþungi árinnar gerir þeim erfitt fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert