Hátt í tvö þúsund manns eru staddir við bandaríska sendiráðið þar sem útifundur vegna ástandsins á Gaza fer nú fram.
Ljósmyndari mbl er á svæðinu og náði mótmælunum á myndband.
Fundurinn hófst klukkan 17:00 og var lögregla með varúðarráðstafanir við sendiráðið og girti það af. Félagið Ísland-Palestína efndi til fundarins en Samtökin Amnesty International mótmæla einnig fyrir utan sendiráðið. Samhliða er haldinn útifundur á Ráðhústorginu á Akureyri.
Í fréttatilkynningu félagsins segir að kröfur fundarins séu að blóðbaðið verði stöðvað tafarlaust, umsátrinu um Gaza aflétt strax, að Palestínumenn hljóti alþjóðlega vernd og að hætt verði að vopna Ísraelsher til voðaverka á Gaza. Þá er Obama beðinn um að stöðva fjöldamorðin.
„Blóðbaðið á Gaza heldur áfram. Ísraelsstjórn fer sínu fram og beitir hernaðarmætti sínum án tillits til mótmæla umheimsins með skelfilegum afleiðingum. Öllum er ljóst að Ísraelsríki getur ekki haldið uppi hernaði sínum gegn Gaza eða hernámi sínu í Palestínu nema með Bandaríkin sem fjárhagslegan og hernaðarlegan bakhjarl,“ segir í tilkynningu félagsins.