Sækja brenndan ferðamann

Björgunarsveitarmenn að störfum.
Björgunarsveitarmenn að störfum. Landsbjörg

Björgunarskipið Gunnar Friðriksson á Ísafirði er nú á leið í Grunnavík í Jökulfjörðum að sækja ferðamann sem brenndist á fæti þegar hann fékk heitt vatn yfir sig. Björgunarsveitin á Bolungarvík er einnig á leið á staðinn og tekur með sér sjúkraflutningamann.

Gert er ráð fyrir að fyrsta björgunarfólkið verði komið á staðinn nú um hádegi, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert