Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið segir að útgjöld Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða innan fjárheimilda. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins.
Í nýútkominni skýrslu um fjárreiður ríkissjóðs á fyrri hluta ársins sé ekki tekið tillit til aukafjárveitingar né heldur þeirra tæplega 200 milljóna sem sjóðurinn átti óráðstafaðar frá fyrra ári vegna verkefna sem búið er að úthluta styrkjum til og greiddir eru út eftir framvindu verkefnanna.
Í umfjöllun Morgunblaðsins í dag kemur fram að Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, gagnrýni að 234 milljónum króna skuli hafa verið varið til framkvæmdasjóðs ferðamannastaða án samþykkis Alþingis.
„Það er búið að veita fé í sjóðinn á grundvelli minnisblaðs sem lagt var fram í ríkisstjórn í sumar um 380 milljóna aukafjárveitingu. Alþingi hefur hins vegar ekki samþykkt fjárveitinguna. Ég mun krefja fjármálaráðuneytið svara vegna þessa. Það má ekki greiða fjármuni úr ríkissjóði nema að fenginni heimild Alþingis,“ segir Vigdís í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Tilkynningin í heild sinni
„Í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar síðustu daga um framúrkeyrslu ríkisstofnanna á fyrri hluta ársins vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið taka skýrt fram að útgjöld Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða eru innan fjárheimilda.
Um miðjan maí samþykkti ríkisstjórnin að veita ríflega 380 milljónum króna til uppbyggingar og verndaraðgerða á ferðamannastöðum á þessu sumri. Um var að ræða sérstaka úthlutun vegna verkefna sem talin voru sérstaklega brýn vegna verndunar náttúru og öryggissjónarmiða.
Í nýútkominni skýrslu um fjárreiður ríkissjóðs á fyrri hluta ársins er ekki tekið tillit til ofangreindrar aukafjárveitingar né heldur þeirra tæplega 200 milljóna sem sjóðurinn átti óráðstafaðar frá fyrra ári vegna verkefna sem búið er að úthluta styrkjum til og greiddir eru út eftir framvindu verkefnanna,“ segir í tilkynningunni.