Ekið á hjólreiðamann á Sæbraut

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Umferðarslys varð á Sæbraut skammt frá Kirkjusandi fyrir stuttu þegar flutningabifreið var ekið á konu á reiðhjóli. Hluta götunnar var lokað fyrir umferð í stutta stund, en hún hefur nú verið opnuð aftur samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Uppfært kl. 21:02: Konan var flutt með sjúkrabíl á slysadeild þar sem hún gengst nú undir rannsókn. Líðan hennar er stöðug og meiðsli ekki talin alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert