Fatlað fólk upplifir fordóma

Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra.
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra. mbl.is/Kristinn

Bæði íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir sýna að langflest fatlað fólk upplifi mikla fordóma og félagslega útskúfun í daglegu lífi. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu rannsóknarseturs í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands um stöðu fatlaðs fólks á tímabilinu 2000-2013. 

Skýrslan var gerð að beiðni velferðarráðuneytisins í samræmi við þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014. 

Í skýrslunni segir enn fremur: „Hér á landi hafa á síðustu árum einnig verið gerðar nokkrar rannsóknir sem hafa kannað fordóma og félagslega einangrun fatlaðs fólks. Rannsóknirnar eiga það allar sammerkt að hátt hlutfall fordóma mælist í garð fatlaðs fólks og að fatlað fólk sjálft telur sig verða fyrir fordómum vegna örorku sinnar eða fötlunar.“

Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, tjáir sig um skýrsluna á vefsíðu velferðarráðuneytisins. „Það er mikill fengur í þessari samantekt fyrir fatlað fólk og alla þá sem láta sig málefni þeirra varða, hvort sem það eru stjórnmálamenn, fagfólk eða fræðimenn, leikir eða lærðir. Þarna fæst greinagott yfirlit yfir allar íslenskar rannsóknir á aðstæðum fatlaðs fólks sem veita margvíslega innsýn inn í aðstæður þeirra sem búa við fötlun af einhverju tagi,“ segir Eygló. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert