Gengið hefur verið frá ráðningu sjö framkvæmdastjóra klínískra sviða á Landspítala. Alls bárust 25 umsóknir frá 19 einstaklingum en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka á lokastigum málsins.
Páll Matthíasson, forstjóri LSH, greinir frá þessu á heimasíðu spítalans.
Páll segir, að hlutverk nýrrar framkvæmdastjórnar sé að leiða uppbyggingu næstu ára á Landspítala. „Það ríður því á að í framkvæmdastjórn veljist hópur með fjölbreytta og víðtæka reynslu sem deilir áherslum og framtíðarsýn fyrir Landspítala, þjóðarsjúkrahúsið. Mér þykir hafa tekist vel til,“ segir Páll í tilkynningu á vef LSH.
Nýju framkvæmdastjórarnir eru:
Páll segir að þau muni taka sæti í nýrri framkvæmdastjórn sem hefur störf 1. september. Auk hans sitja þar áfram aðstoðarforstjóri, framkvæmdastjórar lækninga, hjúkrunar, fjármálasviðs og rekstrarsviðs auk starfsmannastjóra.
Samhliða tekur gildi nýtt skipurit Landspítala.