Umferð takmörkuð við LSH

Ökumenn verða beðnir um að gera grein fyrir sér á …
Ökumenn verða beðnir um að gera grein fyrir sér á menningarnótt ætli þeir sér að komast að Landspítalanum við Hringbraut. mbl.is/Sigurður Bogi

Landspítalinn vekur athygli á því að takmarkanir verði á umferðarleiðum við spítalann við Hringbraut á menningarnótt í Reykjavík á laugardag. Umferð verður hvorki leyfð af Snorrabraut né eftir gömlu Hringbrautinni. Lokunin tekur gildi kl. 8:30 og varir til 22:45.

Bent er á, að þeim sem eiga erindi á spítalann verði hleypt í gegnum lokunina en þeir þurfa að gera grein fyrir sér.  Þá er mælst til þess að starfsmenn spítalans hafi auðkenniskortið á sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert