15.286 hlaupa á morgun

Frá Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra.
Frá Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra. Árni Sæberg

Hið árlega Reykjavíkurmaraþon fer fram á morgun og lauk skráningu í kvöld. Alls skráðu sig 15.286 manns í ár, þar af 1.055 í maraþon, 2.491 í hálfmaraþon og 7.035 í 10 kílómetra hlaup.

Hægt verður að skrá sig í þriggja kílómetra hlaupið og Latabæjarhlaupið á morgun.

Þeir sem hlaupa maraþon og hálfmaraþon byrja klukkan 8:40 á morgun. Þeir sem hlaupa 10 kílómetra byrja 55 mínútum síðar, eða klukkan 9:35.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert