Jeppabifreið ók á íbúðarhús

Af vef Víkurfrétta.
Af vef Víkurfrétta.

Mikil mildi þótti að ekki hafi orðið slys á fólki þegar að jeppabifreið ók inn í garð og á íbúðarhús við Vatnsholt í Reykjanesbæ á miðvikudaginn. Samkvæmt frétt Víkurfrétta virðist sem bíllinn, sem var kyrrstæður í bílastæði í næsta húsi, hafi farið skyndilega af stað með þeim afleiðingum að bíllinn fór í gegnum grindverk, keyrði niður tvo pósta sem standa við útidyrnar og hafnaði á húsinu.

Stuttu áður höfðu þrír ungir drengir verið að leik á trampólíni í garðinum og skófatnaður þeirra var á grasinu. Íbúum í kring var mjög brugðið en sem betur fer slasaðist enginn í óhappinu.

Samkvæmt öruggum heilmildum Víkurfrétta þá tengist sama bifreiðin óhappi sem var fyrir utan verslun í Hólmgarði í síðustu viku. Þar var jeppanum ekið á fólksbifreið þar sem kona varð á milli jeppans og fólksbílsins. Er konan talsvert slösuð og svo virðist sem hné hennar hafi skaddast talsvert.

Að sögn Víkurfrétta staðfesti lögreglan að óhappið við Hólmgarð hafi átt sér stað og að flytja hafi þurft tvo á heilsugæslu.

Ekki liggur grunur fyrir því að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum vímuefna en slíkar upplýsingar liggi ekki fyrir varðandi málið á Vatnsholti.

Samkvæmt frétt Víkurfrétta var í báðum tilfellum um að ræða bíl af sömu tegund og sama lit, þar sem ökumaður var kona af erlendu bergi brotin. Lögregla gat ekki staðfest að um sama ökumann sé að ræða.

Sjá frétt Víkurfrétta.

Mikil mildi þótti að ekki fór verr.Mynd af vef Víkurfrétta.
Mikil mildi þótti að ekki fór verr.Mynd af vef Víkurfrétta.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert