Kominn úr öndunarvél

mbl.is/Sigurður Bogi

Karlmaður sem var flutt­ur al­var­lega slasaður á Land­spít­al­ann í Foss­vogi fyr­ir viku síðan eftir að hafa fallið ofan af þaki við Stórhöfða er nú kominn úr öndunarvél. Líðan hans er stöðug að sögn vakthafandi læknis, en hann er enn á gjörgæsludeild.

Manninum hafði verið haldið sofandi í öndunarvél frá því slysið varð þann 15. ágúst sl.

Maður­inn var að sinna viðhalds­vinnu á þak­inu þegar hann féll fjór­ar hæðir niður á mal­bik, eða um 12 metra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert