Laus af strandstað

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Skúta sem strandaði á Viðeyjarsundi um níu leytið í gærkvöldi losnaði af strandstað um eitt í nótt og var hægt að sigla henni fyrir eigin vélarafli.

Tilkynning um strandið barst upp úr níu í gærkvöldi. Skútunni mun hafa verið siglt á sker og sat hún þar föst. Enginn leki kom að skútunni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Fjórir voru um borð og voru þrír aðstoðaðir í land. Skipstjórinn var áfram um borð og beið í þeirri von að skútan myndi losna á flóði.  

Skúta strönduð við Reykjavík

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert