Kort af lokunum vegna gossins

Lokanir á fjallvegum norðan Vatnajökuls eru skyggðar með gráum lit …
Lokanir á fjallvegum norðan Vatnajökuls eru skyggðar með gráum lit á kortinu.

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Einnig nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn. Vegum við Dettifoss hefur einnig verið lokað.

Hægt er að sjá þær hér.

Veðurstofan telur sterkar vísbendingar um að lítið eldgos sé hafið undir Dyngjujökli í norðanverðum Vatnajökli. Engin ummerki um gos sjást á yfirborði jökulsins. Nú er beðið eftir að sjá hvort og þá hversu mikið flóðavatn kemur undan jöklinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert