Telja gos hafið undir Dyngjujökli

Bárðarbunga.
Bárðarbunga. mbl.is/Árni Sæberg

Vísindamenn Veðurstofu Íslands telja að lítið eldgos sé hafið undir sporði Dyngjujökuls. Þar sem atburður er hafinn hefur Ríkislögreglustjóri ákveðið að færa hættustig upp á neyðarstig og Veðurstofa Íslands hefur fært litakóða vegna flugs upp á rautt, sem þýðir að flug er nú bannað yfir svæðinu.

Talið er að um lítinn atburð sé að ræða enn sem komið er og vegna þrýstings frá jöklinum er óljóst hvort gosið muni eingöngu verða undir jökli eða koma upp úr honum.
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-Sif er komin að jöklinum með vísindamenn innanborðs og er ekki að sjá gosmökk yfir jöklinum. Engar vísbendingar eru um bráðnun frá jöklinum eða hlaup vegna goss.

Á þessu stigi miðast viðbúnaður við lítinn atburð. Búið er að loka Jökulsárgljúfrum og hafin rýming ferðamanna þaðan sem og af Dettifosssvæðinu. Að svo stöddu er ekki talin ástæða til að rýma íbúa- og frístundabyggð í Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpasveit. Fólk á þessu svæði er hvatt til að fylgjast grannt með fréttum og vera í stöðugu farsímasambandi.

Verður staðfest með þrennum hætti

Melissa Anne Pfeffer, sérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að vísindamenn muni staðfesta að gos sé hafið með þrennum hætti.

Fyrstu staðfestingunar hafa þau þegar, því mælitæki Veðurstofunnar hafi sýnt að vatn, eða ís, og kvika hafi snerst. Gildin á mælitækjunum segir hún vera þau sömu og urðu í gosinu á Fimmvörðuhálsi.

Önnur staðfestingin myndi felast í auknu vatnsrennsli í Jökulsá á Fjöllum. Hins vegar er bilun í símkerfi, sem þýðir að Veðurstofan hefur ekki gögn í rauntíma. 3 til 6 tíma getur tekið fyrir staðfestingu að fást með þeim hætti.

Þriðja staðfestingin myndi svo felast í sjónrænni staðfestingu úr lofti, t.d. í breytingum á jöklinum, svo sem hruni eða öðrum breytingum.

Þróun skjálftavirkni í norðanverðum Vatnajökli/Bárðarbungu.
Þróun skjálftavirkni í norðanverðum Vatnajökli/Bárðarbungu. mbl.is/Elín Esther
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert