Banaslys varð á Hafnarvegi, skammt norðan við Höfn í Hornafirði, um klukkan hálfsex í dag. Sendiferðabifreið og vöruflutningabifreið lentu saman með þeim afleiðingum að ökumaður sendibifreiðarinnar var úrskurðaður látinn á heilsugæslunni á Höfn.
Hinn látni er karlmaður á sextugsaldri. Ekki fengust staðfestar fregnir af líðan ökumanns vöruflutningabifreiðarinnar.
Tildrög slyssins eru ókunn að svo stöddu og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Höfn er það til rannsóknar.