Í kvöld klukkan 20.00 hófst íbúafundur í Ljósvetningabúð með lögreglustjóranum á Húsavík, fulltrúum almannavarna og Veðurstofunnar og öðrum hagsmunaaðilum.
Á dagskrá fundarins var að fara yfir málefni er varða jarðskjálftahrinuna við Bárðarbungu, viðbúnað og viðbrögð, auk þess að svara fyrirspurnum íbúa um málið. Í morgun var daglegur stöðufundur með viðbragðs- og hagsmunaaðilum í húsnæði björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík.